Tíu skilaboð - Að skapa öryggi úr óvissu; https://beggiolafs.com/product/tiu-skilabod/ 24/7 - Spurningaspil sem stuðlar að innihaldsríkum samræðum; https://beggiolafs.com/product/24-7-spurningaspil/
Tíu skilaboð - Að skapa öryggi úr óvissu; https://beggiolafs.com/product/tiu-skilabod/ 24/7 - Spurningaspil sem stuðlar að innihaldsríkum samræðum; https://beggiolafs.com/product/24-7-spurningaspil/
Mari Jearsk er hlaupadrottning og orkubolti. Í þættinum ræðir Marí söguna sína, æskuna, frelsi og aga í uppeldi, hvort hún hafi alltaf verið ákveðinn og heiðarleg, af hverju fólki líkar svona vel við hana, hvernig hún fékk ástríðu fyrir hlaupum, hvernig hún kemst í gegnum sársauka í hlaupum, hvert hún stefnir í framtíðinni, hvernig hún tekst á við vonbrigði, að upplifa allan tilfinningaskalann sem lífið hefur upp á að bjóða, hvernig sé að takast á við frægðina, vináttu Begga og Mari og margt margt fleira.
Tíu skilaboð - Að skapa öryggi úr óvissu; https://beggiolafs.com/product/tiu-skilabod/ 24/7 - Spurningaspil sem stuðlar að innihaldsríkum samræðum; https://beggiolafs.com/product/24-7-spurningaspil/
Tíu skilaboð - Að skapa öryggi úr óvissu;
Tíu skilaboð - Að skapa öryggi úr óvissu;
Tíu skilaboð - Að skapa öryggi úr óvissu;
Tíu skilaboð - Að skapa öryggi úr óvissu;
Forsalan er hafinn!
Forsalan er hafinn!
Forsalan er hafinn!
Andrea Kolbeinsdóttir er hlaupadrottning. Í þættinum ræðir Andrea hlaup, sína sögu, hugarfarið sem þarf að hafa í hlaupum, allar fórnirnar, jafnvægið í að lifa lífinu og að taka hlaupunum alvarlega, af hverju hún er sinn eiginn þjálfari, hvað hún vill gera með læknisfræðina, hvert hún stefnir í framtíðinni og margt margt fleira.
Snorri Magnússon er þroskaþjálfi, íþróttakennari og frumkvöðull í ungbarnasundi. Í þættinum ræðir Snorri ungbarnasund, þroska, uppeldi, sungþjóðina Ísland, mikilvægi þess að gefa sér tíma með börnunum sínum, geðtengsl, snertingu, fæðingarþunglyndi, að skilja þá sem koma eftir á okkur betri og svo margt margt fleira.
Kári Helgason er stjarneðlisfræðingur og stjórnar rannsóknum og nýsköpun hjá Carbfix. Í þættinum ræðir Kári Carbfix, 16 milljarða króna styrkinn sem þeir voru að fá, koltvíoxíð, loftlagsbreytingar, hegðun fyrirtækja, ákvarðanir stjórnvalda og einstaklingshegðun, loftlagskvíða, stjarnvísindi, líf á öðrum hnöttum, uppruna alheimsins, Webb og Hubble sjónaukana, Elon Musk og margt margt fleira.
Indíana er þjálfari og eigandi og stofnandi Go move. Í þættinum ræðir Indí GoMove, hreyfingu, mataræði, að velja sér hvað maður er tilbúinn að þjást fyrir, minnka alla umfram þjáningu, gefa sér tíma að finna sína akgrein í lífinu, að taka lífinu ekki of alvarlega, hafa hlutina einfalda umfram flókna, muninn á hreyfingu og æfingu, setja sjálfan sig í fyrsta sætið og margt margt fleira.
Solla Eiríksdóttir er heilsugúru. Í þættinum ræðir Solla kulnun, skilnað, búddisma, skilgreiningar, að líta á sig sem einstakling, ekkert sé rétt eða rangt, að ráða inn hægt en reka hratt, möntrur, lífræna ræktun, að hjálpa föngum að öðlast líf eftir fangelsi, kærleika og margt margt fleira.
Sævar Helgi Bragason er vísindamiðlari, stjörnufræðikennari, fyrirlesari og rithöfundur. Í þættinum talar Sævar um að sjá heiminn út frá augum barnsins, loftlagsbreytingar, stjarnvísindi, líf á öðrum hnöttum, ávinning þess að rannsaka geiminn, geimfara og margt margt fleira.
Brynjar Karl er stofnandi Keyhabits og Sideline sports, þjálfari og fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta. Í þættinum ræðir Brynjar jesú, sannleikann, að hindrunin verður vegurinn, þróun karakters, að auka virðið þitt, femínisma og öfgafemínisma, muninn á réttindi og ábyrgð, fórnarlambshugsun og sigurvegarahugsun, harða ást, aga, að æfa sig að tala ekki ílla um fólk, þjáningu og þroska og margt margt fleira.
Brynjar Karl er stofnandi Keyhabits og Sideline sports, þjálfari og fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta. Í þættinum ræðir Brynjar íþróttafélagið Aþenu, mótspyrnuna sem það hafa mætt í íþróttahreyfingunni, átök akademíunar og Brynjars, svör við gagnrýni Hafrúnar Kristjáns í fyrrum þætti 24/7, hvað hann er að reyna ná fram með Aþenu, umgmenni í íþróttum, kvenfólk í íþróttum, valdeflingu og margt margt fleira.
Þráinn Freyr er matreiðslumeistari, eigandi Sumac og Óx og fyrrum liðsmaður og þjálfari í kokkalandsliðinu. Í þættinum ræðir Þráinn matreiðslu, hvernig hann byggði upp tvo gríðalega vinsæla staði, hvernig Óx tókst að fá Michelin stjörnu, hvað einkennir góðan kokk, hvernig maður verður góður stjórnandi og margt margt fleira.
Willum Þór Þórsson er heilbrigðisráðherra, fyrrum þjálfari og leikmaður í knattspyrnu og kennari. Í þættinum ræðir Willum leiðtogahæfni, heilbrigðiskerfið, forvarnir, ellina, íþróttir, tilfinningar, árangur, Alex Ferguson, að gleyma aldrei gleðinni og margt margt fleira.
Sigurður Örn Ragnarsson er besti þríþrautarkappi landsins og sérfræðingur í leiðum til að ná árangri í íþróttum og efla heilsuna okkar til lengri tíma. Í þættinum ræðum við þríþraut, algeng mistök sem fólk gerir varðandi hreyfingu, algeng mistök sem fólk er að gera í mataræði, hvernig afreksíþróttafólk æfir og borðar, hvatbera, blóðsykur og innsúlín, hvernig við fylgjum því sem við vitum að sé rétt fyrir okkur, hugarfarið sem þarf til að halda áfram í miðjum sársauka og margt margt fleira.
Guðmundur Þórarinsson er knattspyrnumaður og tónlistarmaður. Í þættinum ræðum við fótbolta, erfiðleika í lífinu, þunglyndi, að manneskjan sé dýr, þrautseigju, barnslega sýn á heiminn, Ingó Veðurguð, aldrei að gefast upp og margt margt fleira.
Júlían er kraftlyftingarmaður. Í þættinum ræðir Júlían kraftlyftingar, ávinninginn við hnébeygjur og réttstöðu, helstu mistök sem fólk gerir í ræktinni, Covid-leti, að maður geti alltaf þróast og bætt sig, hvernig þér líður sé lygi,stöðugleika, litlu skrefin og margt margt fleira.
Guðmundur Ebenezer er sálfræðingur og frostjóri Lifekeys. Í þættinum ræðir Guðmundur geðheilsu, nýjar lausnir við geðrænum áskorunum, geðheilbrigði og vinnuumhverfið, algengar áskoranir í lífi fólks, hvort að geðheilsa sé að hraka, færni til að eiga við lífið, mikilvægi þess að leita ráða hjá öðrum og vega og meta þegar maður gefur ráð og margt margt fleira.
Emmsjé Gauti er rappari. Í þættinum talar Gauti um heiðarleika, meðvirkni, rapp, stöðugleika, sköpunarferlið, fíkn, leitina að sannleikann, skoðanir, vera mannlegur, afglæpavæðingu fíkniefna og margt margt fleira.
Kristján Guðmundsson er sálfræðingur, heimspekingur og kennari. Í þættinum ræðir Kristján sálfræði, siðblindu, geðraskanir, atferlissálfræði, Skinner, raðmorðingja, Mind hunter, kvikmyndasálfræði og margt margt fleira.
Áslaug Arna er nýsköpunar, háskóla og iðnaðarráðherra. Í þættinum talar Áslaug um stjórnmál, af hverju mörgum er illa við sjálfstæðisflokkinn, nýja ráðúneytið, að vera ung í stjórnmálum, að vera óhræddur, álit annarra, ótti við höfnun, leiðtogahæfni, stimpilklukku, að hafa trú á sjálfum sér og margt margt fleira.
Þórarinn Guðjónsson er prófessor í Vefjafræði við læknadeild Háskóla Íslands og deildarforseti læknadeildar. Í þættinum ræðir Þórarinn Stofnfrumur, hlutverk þeirra í meðferð við krabbameini, alzheimer og sykursýki, hvort stofnfrumur geti hraðað endurheimt eftir meiðsli, aukið lífsgæði og gert okkur ennþá heilbrigðari í nákominni framtíð, siðferði og stofnfrumur úr fósturvísi og margt margt fleira.
James Lawrence "Iron Cowboy" is a canadian ultra endurance athlete, mindset and fitness coach, book author and a keynote speaker. In the episode James talks about redefining impossible, the hardest thing about doing 101 Iron-Distane triathalons in 101 days, benefit of just starting, consistency rather intensity, that motion creates motion, discipline beats motivation, how to develop a passion, why they went for one more ironman after the 100, courge in suffering, realistic ambition and much, much more.
Andri Iceland er þjálfari með fókus á heilbrigði. Í þættinum talar Andri um öndun, kulda, streitu, forritið sem við erum að keyra á, uppeldi, samfélagið, áföll sem færast niður kynslóðir, ábyrgð, að hvort sem þú trúir því eða ekki þá hefur þú alltaf rétt fyrir þér, að dæsa sé súperkraftur og margt margt fleira.
Matthías Örn er tvöfaldur Íslandsmeistari í pílu. Í þættinum ræðir Matthías hvað þarf til að ná árangri í pílu, af hverju píla varð svona vinsæl, af hverju hann ákvað að hætta í fótbolta og snúa sér að pílunni, muninn á að æfa og keppa, hugarfarið sem þarf til þess að ná árangri, hversu langt hann er frá þeim bestu í heimi, einföld ráð til að bæta sig í pílu og margt margt fleira.
Your Super - https://tropic.is/voruflokkur/ofurfaedur/your-super/
Una Emilsdóttir er læknir og eiturefna-aðgerðarsinni. Í þættinum ræðir Una áhrif eiturefna á lífið okkar og barnana okkar, galnar hefðir, galnar vörur í matvöruverslun, eiturefni og hormón, eiturefni og taugakerfi, hvernig við getum lágmarkað skaðann frá eiturefnum, efiðleikarnir við að vera meðvitaður, að halda grunninum góðum en leyfa sér við og við og svo margt margt fleira.
Gústi B er tónlistarmaður, samfélagsmiðlastjarna, leikari og plötusnúður. Í þættinum ræðir Gústi samfélagsmiðla, stöðugleika, dauðann, hvernig maður nær árangri, markmið, samfélagsmiðlafíkn, áhrif samskiptamiðla á samskipti, að swipe-a sig úr fermingaveislum og margt margt fleira.
Dóri DNA er þúsundþjalasmiður. Í þættinum ræðir Dóri lyftingar, hlaup, list, næstu skrefin í lífinu og áherslur, skrif, missir á trú á stjórnmálum, að hlusta á hvort annað, hvernig maður getur orðið skapandi, ókostir samskiptamiðla og skoðana á netinu, að loka augunum og opna hartað og margt margt fleira.
Þátturinn er í boði:
Höskuldur Gunnlaugsson er fyrirliði Breiðabliks í knattspyrnu. Í þættinum ræðir Höskuldur virðið og lærdóminn í fótbolta, muninn á leik og vinnu, leiðtogahlutverkið, þrautseigju, að taka skoðanir og sjónarhorn barna inn í myndina, að þú skapir ástríðuna umfram að þú finnir hana, að gera allt eins og sannur meistari, réttlætiskennd, hugrekki og margt margt fleira.
Birgir Jónsson er forstjóri Play. Í þættinum ræðir Birgir stjórnun, auðmýkt, árangursríka menningu, egóið, berskjöldun, heiðarleika, áskoranir varðandi Play, að fylgja hjartanu, þora að breyta um stefnu í lífinu, vera maður sjálfur, losa sig við bagga sem halda manni niðri og margt margt fleira.
Guðni Gunnarsson er lífsþjálfi, frumkvöðull, rithöfundur og leiðbeinandi. Í þættinum ræðir Guðni athygli, að margir séu að hafna sé, beita sér ofbeldi og að fylgja sorgarsögu, skrefin til að snúa athyglinni frá skort í ljós, ábyrgð, að vilja sig, sannleikann, að hann hafi aldrei gert mistök og margt margt fleira.
Þátturinn er í boði:
Lukka Pálsdóttir er frumkvöðull í notkun næringar á heilsueflingu. Í þættinum ræðir Lukka hvernig við getum fylgt því sem við vitum að sé rétt, blóðsykur, sykursýki, bólgur, leiðir til að efla efnaskiptaheilsu og koma í veg fyrir blóðsykurssveiflur, mýtur eins og að allt sé gott í hófi, að heilbrigði sé byggt á samlegðar áhrifum af okkar ákvörðunum og margt margt fleira.
Björn Hjálmarsson er sérfræðikænir á barna og unglingageðdeild (BUGL). Í þættinum ræðir Björn sorg út frá sálfræði og eigin reynslu að missa dreng frá sér á ósanngjarnan hátt, að finna innri frið, að vera forvitinn um hvað þú sért að segja sjálfum þér, fórnalambshugsun, Carl Jung, Viktor Frankl, fegurð, ást, að gera gagn, áhrif þriggja byltingarinna á geðheilbrigði barna: stafrænu byltinguna, þriggja kynnslóða byltinguna, og vinnubyltinguna, stafrænt ofbeldi og margt margt fleira.
Unnur Ösp er leikkona, leikstjóri og handritshöfundur. Í þættinum ræðir Unnur leiklist, myrku eiginleika manneskjunnar, sammannlega tilvist manneskjunnar, vertu úlfur, að geta sitið í sjálfum sér, tækni, kulnun, frelsi, ábyrgð, berskjöldun, útskúfun og margt margt fleira.
Matti Ósvald er markþjálfi. Í þættinum ræðir Matti karlmennsku, eitraða hegðun, virðingu, ábyrgð, tilgang, Lion King, að vilja sjálfan sig, knúsa barnið í sér og margt margt fleira.
Gauti Grétarsson er sjúkraþjálfari. Í þættinum ræðir Gauti lýðheilsu, forvarnir, heilsu og covid, hreyfingar handa og auga, heilsulæsi, skólakerfið, sjálfsaga, þroskaþjófa, borgarlínuna, að axla ábyrgð á eigin heilsu, að æfa minna, af hverju fólk gerir ekki sem það veit að sé gott fyrir sig, útrýma byssunotkun og margt margt fleira.
Víkingur Hauksson er sjálfstæður fjárfestir og Bitcoin sérfræðingur. Í þættinum svarar Víkingur spurningum frá hlustendum um Bitcoin. Víkingur talar meðal annars um bitcoin í samhengi við ríkistjórnina og seðlabankann, af hverju hann hefur svona litla trú á öðrum rafmyntum, hvað Bitcoin hefur yfir aðrar rafymyntir, hvernig Bitcoin mun leysa vanda peningsins, að Bitcoin sé besti harði peningur til að geyma virði, að það sé ekki of seint að kaupa sér Bitcoin, af hverju Bitcoin verður til í takmörkuðu magni einn daginn, hvort að Bitcoin verði gjaldmiðill eða bara vermætageymsla, hvað hann myndi gera við tíu milljónir ef hann ætti ekki neitt og margt margt fleira.
Bjarney er yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Í þættinum ræðir Bjarney lögregluna, áskoranir við starfið, persónuleika og hæfni sem lögreglumaður þarf að hafa, David Goggins, berskjöldun, þrautseigju, hugrekki, að það þurfa ekki allir að líka vel við þig, að harðir aðstæður líða hjá en harðir einstaklingar ekki, yoga, að þekkja sínar takmarkanir og margt margt fleira.
Helga Braga er leikkona, fyrirlesari og leiðsögukona. í þættinum ræðir Helga hamingju, núvitund, búddísma, kærleik, Gyðu Sól, fast-fashion, umhverfið, kaupfíkn og margt fleira.
Tómas Andrés Tómasson er goðsaka í Íslensku viðskipta og veitingalífi og þingmaður Flokks fólksins. Í þættinum ræðir Tommi hamingjuna, fíkn, alkóhólisma, heiðarleika, litlu skrefin, að segja ég elska þig, afglæpavæðingu fíkniefna, tólf spora kerfið, að vera í stöðugri æfingu og margt margt fleira.
Aníta Briem er leikkona og handritshöfundur. Í þættinum ræðir Aníta leiklist, vinnuna að komast inn í karaktera og erfiðleikana við að losna við þá, upplifunin að vera í Hollywood, fæðingarþunglyndi, slúðursögur, að fylgja innsæinu, kvikymdina Skjálfta, að gefa öðrum ljós, að vera heiðarleg, hlusta á aðra og margt margt fleira.
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir er að gefa sér kost í oddvitasætið á lista sjálfstæðisflokki fyrir borgarstjórakostningar. Í þættinum ræðir Alda Reykjavík, húsnæðismarkaðinn, að hjálpa kerfunum og framlínufólki að vinna saman, að maður getur ekki verið 100% á öllum sviðum lífsins, að hafa hafa húmor fyrir sjálfum sér, lifa lífinu eftir eigin höfði, að þjónusta aðra og margt margt fleira.
Tryggvi Hjaltason er menntaður öryggis og varnarmálafræðingur frá Bandaríkjunum. Í þættinum ræðir Tryggvi stríðið í Úkraníu, aðdraganda stríðsins, af hverju Rússum er að ganga svona illa, hlutverk vonarinnar í stríðum, leiðtogahæfni Zelensky, hugarheim Pútins, áhirf stríðsins á heiminn til lengri og skemmri tíma, samvinnu heimsins gegn Rússlandi, hvort að Rússar séu líklegri til að beina kjarnorkuvopnum, hvort það séu líkur á þriðju heimstyrjöldinni, hvernig við sjáum stríðið þróast og margt margt fleira.
Páll Líndal er doktor í umhverfissálfræði. Í þættinum ræðir Páll um hvernig umhverfið spilar inn í okkar vellíðan og heilsu, að hlaða batterýin með umhverfinu,kraftinn í náttúrunni, þróun mannkynns út frá yfirsýn og flótta, skipulag vinnustaða, heimilis, byggingar og hverfa, hvar er best að búa á í Reykjavík, uppsetning matvöruverslana, að það sé ekkert smekksatriði og margt margt fleira.
Sylvía Briem og Eva Mattadóttir koma saman undir nafninu Normið. Í þættinum ræðum við normið, sjálfsbætingu, hlaða batterýin, sannleikann, alkahólisma, bólusetningar, skoðanafrelsi, umhyggju, að njóta, að vera maður sjálfur og margt margt fleira.
Finnur Oddson er forstjóri Haga. Í þættinum ræðir Finnur stjórnun, vinnumarkaðinn, atferlissálfræði, eiginleika til að fást við breytingar framtíðarinnar, venjur, andlega heilsu, loftlagsbreytingar, störf framtíðarinnar, gerfigreind, hvernig verslun á eftir að breytast í framtíðinni og margt margt fleira.
Anna Kristín Newton er sálfræðingur. Í þættinum ræðum við réttarsálfræði, fanga, fangelsi, ofbeldi, árásahneigð, kynferðisofbeldi, ábyrgð, afturkoma gerenda í samfélagið, barnahneigð og margt margt fleira.
Vanda Sig er formaður KSÍ. Í þættinum ræðir Vanda leiðtogafærni, að leiða á krefjandi tímum, traust, að vera trúr sjálfum sér, ígrunda mistök, að pressa sé forréttindi, fátækt, að taka ákvörðun um að vera góður og margt margt fleira.
Erpur Eyvindarson (Blaz Roca) er rappari og tónlistarmaður sem var að gefa út nýja lagið Slaki babarinn. Í þættinum ræðir Erpur rapp, kapítalisma, anarkisma, ástríðu, að hann sé ekki rugludallur, hugrekki í sköpun, álit frá fólki sem stendur sér næst, kommentakerfin, fylleríssögur í Rúmeníu, fegurð, kraftinn í náttúrunni, að elska sjálfan sig, að valda ekki öðrum skaða, að elska sjálfan sig og margt margt fleira.
Vilborg Arna er landkönnuður, leiðsögumaður og fyrirlesari. Í þættinum ræðir Vilborg innra og ytra ferðalagið, leiðangra, suðurpólin, everest, vonbrigðin við að ná ekki markmiðunum sínum, vegferðina umfram áfangastaðinn, hugarfarið sem þarf við að fást við stórar áskoranir, gildi, loftlagsmál, sjálfsþekkingu, ákvarðanatökur og margt margt fleira.
Þátturinn er í boði:
Helgi Ómars er bloggari, ljósmyndari og áhrfavaldur. Í þættum ræðir Helgi sjálfsvinnu, Narsissisma, sársauka, áföll, hamingju, ábyrgð, að vera ekki yfir öfðum hafður, virðingu, spiritual einstaklinga sem hafa farið of langt, þunglyndi, innsæið, að vinna sig úr erfiðleikum og margt margt fleira.
Víkingur Hauksson er sjálfstæður fjárfestir og Bitcoin sérfræðingur. Í þættinum ræðir Víkingur peningasöguna, gull, dollarann, bitcoin, hagkerfið, harða peninga, mjúka peninga, bitcoin og umhverfið, fjárfestingar og margt margt fleira.
Þórir Hergers er þjálfari kvennaliðs Noregs í handbolta. Í þættinum ræðir Þórir hvað einkennir góða liðsheild, hvernig lið viðhalda árangri, hvernig ákveðin leiðtogafærni nær því besta úr leikmönnum, styrkleikanotkun, andlegan styrk, að vera við bilstjórasætið, að vera alltaf að læra, að vera heildrænt á góðum stað í lífinu, skólakerfið, að það sé enginn nógu góður fyrir neitt, að elta draumana sína og margt margt fleira. Þátturinn er í boði:
Sara María er að læra sálmeðferðafræði með áherslu á hugvíkkandi efni. Í þættinum ræðir Sara allt um hugvíkkandi efni, psilocybin, MDMA, trip, microdosing, ávinninga, hvað ber að varast, umhverfisaðstæður, meðvitund, barnið í sjálfum sér, sjálfsþekkingu og margt margt fleira.
Hildur Björnsdóttir er borgarfulltrúi sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur. Í þættinum ræðir Hildur frelsisborgina, skólakerfið, frelsi, eiginleika fyrir framtíðina, ábyrgð, jafnrétti kynjana, krabbamein, viðhorf, að stökkva á tækifæri, að vera trúr sjálfum sér og margt margt fleira.
Aron Jóhannson er leikmaður Vals í knattspyrnu. Í þættinum ræðir Aron um atvinnumannadrauminn, uppeldi, foreldra í íþróttum, hugarfar og persónuleika sem þarf til að ná árangri, að taka lífinu ekki of alvarlega, þunglyndi, sjálfstraust, ákvörðunina um að velja að spila fyrir Bandaríkin, kröfurnar við atvinnumennsku, að axla ábyrgð, að hafa gaman og margt margt fleira.
Edda Falak er fjármálafræðingur, áhrifavaldur og stjórnandi hlaðvarpsins Eigin konur. Í þættinum ræði Edda hugrekki, að fólk haldi að hún sé karlahatari, að slaka á í lífinu, mismunandi skoðanir, veikindadaga, að sinna færri boltum en fleirum og margt margt fleira.
Ólafur Grétar Gunnarsson er hjónabands og fjölskylduráðgjafi. Í þættinum ræðir Ólafur sambönd, algeng vandamál í samböndum og lausnum við þeim, barneignir og sambönd, að fjárfesta í samböndum, einföld tæki og tól til að gera sambönd betri, afhverju fólk hættir saman, hvað sé mikilvægt að hafa í huga í samböndum á meðgöngu og við barneignir, hversu mikilvæg sambönd eru fyrir velferð barna og margt margt fleira.
Rafn Franklin er þjálfari og heilsuráðgjafi. Í þættinum ræðir Rafn 360° heilsu, hugarfarið í átt að heilsusamlegu lífi, heilbrigði út frá þróun, kolvetni og fitu, jafnvægið á sjálfsást og sjálfsaga, ábyrgð, félagslegar aðstæður og matur, að finna jafnvægið, að taka lífinu ekki of alvarlega, njóta litlu augnablikana í lífinu, setja sig í forgang og margt margt fleira.
Sigurjón Ernir er ultrahlaupari, íþróttafræðingur og eigandi Ultraform. Í þættinum ræðir Sigurjón heilbirgði, blóðsykurstjórnun, mataræði, ultrahlaup, að fara sínar eigin leiðir, þroskanum sem fylgir því að gera óþægilega hluti, sársauka í lífinu, að setja sig sjálfan í fyrsta sætið og margt margt fleira.
Óttar Guðmundsson er geðlæknir og rithöfundur. Í þættinum ræðir Óttar um geðlækningar, dauðann, algengasta vanda samfélagsins í dag, kvíða, tilfinninganæmi, trú, alkóhólisma og margt margt fleira. Þátturinn er í boði:
Helgi Freyr er eigandi og stofnandi Primal. Í þættinum ræðir Helgi um hreyfigetu, stoðkerfi, heilbriðgi út frá þróuninni, að engin hreyfing sé röng, eðlisfræði, svarthol, hreyfingu, að allir geta lært á eitthvað, að fylgja því sem maður trúir á og margt margt fleira.
Heimir Guðjóns er einn sigursælasti knattspyrnuþjálfari landsins. Í þættinum ræðir Heimir fótbolta, tímana sem hann og Beggi áttu saman hjá FH, leiðtogahæfni, einkenni liða sem ná árangri, að fólk haldi að hann sé alvarlegri en hann er, sjálfsábyrgð og sjálfsgangrýni, fótboltahlaðvörp sem kasta fram fréttum án þess að hafa nein rök á bakvið þær og margt margt fleira.
Guðmundur Felix er fyrsti einstaklingur sem hefur fengið tvær hendur ígræddar í sig frá öxlum. Ásamt því er hann markþjálfi, fyrirlesari og höfundur bókarinnar 11.000 volt. Í þættinum ræðir Felix að axla ábyrgð og taka stjórn á sínu lífi, hamingjuna sem felst í að vaxa, þakklæti, guð, 12 sporin, Eckhart Tolle, að breytingar taki stuttan tíma, að þú sért stöðugt að velja hvernig þér líður og margt margt fleira.
Guðmundur Felix er fyrsti einstaklingur sem hefur fengið tvær hendur ígræddar í sig frá öxlum. Í þættinum ræðir Felix sína sögu í allri sinni mynd. Hann ræðir áföll og erfiðleika í æsku, atburðinn þegar hann fékk 11.000 volt í gegnum báðar hendurnar og neysluna og erfiðleikana sem fylgdi í kjölfarið, þrautseigjuna að sækjast eftir handígræðslu í hátt í tvo tugi ára, aðgerðin ómögulega, endurhæfingin, framtíðarvonir og margt margt fleira.
Fortuna Invest er samstarfsverkefni Anítu Rutar, Rósu Kristins og Kristínar Hildar. Í þættinum ræða Aníta og Rósa um fjárfestingar, fjármál, David Goggins, 20-30-50 regluna, sparnað, afhverju það er svona mikið tabú að ræða peninga, peninga og ótta, peninga og hamingju, peningar og áhættur og margt margt fleira.
Katrín Edda er verkfræðingur og samfélagsmiðlastjarna. Í þættinum ræðir Katrín sjálfkeyrandi bíla, hvernig viðurkenningar fyrir dugnaðinn sinn stjórnaði lífinu sínu, venjur, lágt sjálfsálit, að sumir haldi að hún sé góð með sig, lífið í þýskalandi, hugleiðslu, svefn og svefnleysi, sjálfsaga, að hafa ekki áhyggjur af því sem maður hefur ekki stjórn á, að vera trúr sjálfum sér og fylgja sinni innri manneskju í staðinn fyrir að leitast eftir ytri viðurkenningum, dagbókina sem hún var að gefa út og margt margt fleira.
Kjartan Atli er fjölmiðlamaður, rithöfundur og körfuboltasérfræðingur. Í þættinum ræðir Kjartan sína fjölmiðla sögu, bókina 1984, frelsi, samskiptamiðla, gagnrýna hugsun, þjálfunaraðferðir út frá hverjum einstaklingi, skoðanir, covid-19, bólusetningar, körfubolta, kyn og íþróttir, innflytjendur, áfengi, hugrekki, mótlæti og margt margt fleira.
Þorgrímur Þráinsson er rithöfundur, fyrirlesari og fyrrverandi knattspyrnuhetja. Í þættinum ræðir Þorgrímur um að vera ástfanginn af lífinu, læsi, sjálfsblekkingu, dauðann, ábyrgð, ópppfært skólakerfi, óábyrga fjölmiðla, snemmtæka íhlutun, að gefa af sér, sjálfsaga og lykilþætti árangurs í lífinu.
Siggi Hall er matreiðslumeistari og einn frægasti kokkur landsins. Í þættinum ræðir Siggi um sína sögu, að stíga sér ekki til höfuðs, sannleika og lygar, þróun samfélagsins, matar- og sjónvarpsbransann, að vera ekki vitleysingur, gera allt eins vel og þú getur, vera góður við aðra og margt margt fleira.
Fannar Þór er eigandi stafrænu auglýsingastofunnar Kiwi. Í þættinum ræðir Fannar um hugrekkinu í að fylgja ástríðunni sinni og margt fleira.
Ragga Nagli er klínískur heilsusálfræðingur, einkaþjálfari og pistlahöfundur. Í þættinum ræðir Ragga um heilbrigði, boð og bönn í mataræði, að það sem aðrir segja sé ekki endilega satt, alltaf að sækja á brattann, að þú sért ekki hugsanirnar þínar, þriðja skammtinn af bóluefninu, að vera þar sem þú ert og margt margt fleira.
Davíð Tómas er körfuboltadómari, þríþrautakappi og fyrrverandi rappari. Í þættinum ræðir Davíð sína sögu sem einkenndist af miklu mótbyr, innra samtalið við sjálfan sig, jákvæðar fréttir, að bera sig saman við sjálfan sig, sjálfsást, að endurforrita hugann og margt margt fleira
Andri Snær Magnason er rithöfundur. Í þættinum ræðir Andri skrif, nýjustu heimildamyndarmyndina sína sem fjallar áhrif COVID-19 á heilsu og líðan, twitter samfélagið, að bjarga plánetunni og margt margt fleira.
Sverrir Þór Sverrisson er leikari, þáttastjórnandi og grínisti. Í þættinum ræðir Sverrir grín, að móðga fólk, að framkvæma samanborið við að hugsa, frægðina, reykingar, að treysta á sjálfan sig og margt margt fleira.
Héðinn Unnsteinsson er formaður geðhjálpar og stefnumótasérfræðingur hjá forsetisráðaneytinu. í þættinum talar Héðinn um vertu úlfur (leiksýningu og bók um sögu Héðins), aðskilnað í samfélaginu, egóið sem truflar okkur, að gefast upp, skipta um skáp í sundlauginni, vendipunktinn þegar hann fór í oflæti í fyrsta skipti og margt margt fleira.
Gummi Emil er einkaþjálfari og power bodybuilder. Í þættinum ræðir Gummi líkamsrækt, að lífið sé ekki sanngjarnt, ábyrgð, veikindi sem breyttu lífinu hans, ávinning sársauka, nofap, slæm áhrif kláms, að lífið sé veisla og margt margt fleira.
Þorkell Máni er umboðsmaður, markþjálfi og fyrrum útvarpsmaður sem gaf nýverið út bókina Þú þarft ekki að vera svona mikill aumingi. Í þættinum ræðir Máni um myrkur, 12 sporin, muninn á trúarbrögðum og að vera andlega trúaður, að það sé hægt að finna lærdóm í öllum uppákomum, sjálfsábyrgð, fórnalambshugsun, heiðarleika og margt margt fleira.
Margrét Lára er ein besta fótboltakona Íslandssögunnar, íþróttafræðingur og sálfræðingur. Í þættinum ræðir Margrét andlegan styrk, mótlæti, þroska og kröfur á aðra, ofþjálfun, að meira sé ekki alltaf betra, að stjórna því sem maður getur stjórnað, geta sýnt sveigjanleika í rútínu, að konur séu öflugir einstaklingar en ekki fórnarlömb, að það búi miklu meira í þér og margt margt fleira.
Hanna Björg er femínisti, kynjafræðingur, kennari í Borgatholtsskóla, frambjóðandi í formennsku KÍ en fyrst og fremst hugrökk stríðskona. Í þættinum ræðir Hanna um hugrekki, kynjafræði, þroska, sársauka, að enginn verði óbarinn biskup, hafa sýn á hver þú vilt vera, kennarastarfið, menntakerfið og margt margt fleira.
Tolli Morthens er myndlistamaður og andlega leitandi. Í þættinum ræðir Tolli um samkennd, athöfnina sweat, vinnu sína með föngum, áföll, forna heilann, sjálfsþekkingu, kapitalisma og margt margt fleira.
Logi Bergmann er okkar ástsælasti fjölmiðlamaður og stjórnmálafræðingur. Í þættinum ræðir Logi um fjölmiðla, skoðanir, nýju stjórnaskránna, hvað Íslendingar hafa það gott, fátækt, golf, ofhugsun, góðsemi, ketti og margt margt fleira.
Jón Jónson er tónlistarmaður en fyrst og fremst góð sál. Í þættinum ræðir Jón um tónlist, nýju plötuna sína, sykursýki, að fá hjálp frá öðrum, fylgja sínum sannleika, að vera góð við náungann, ábyrgð, að forvinna vandamál, gefa allt sem þú átt og margt margt fleira.
Gerður Arinbjarnardóttir er frumkvöðull og eigandi blush.is. Í þættinum ræðir Gerður sambönd, sjálfsfórnun, kynlíf, að endurskapa viðhorfin sín, gildi, hugarfarið sem fylgir því að skapa sitt eigið fyrirtæki, að fara sínar eigin leiðir, að allir geti eitthvað en enginn getur allt og margt margt fleira.
Martin Hermannson er körfuboltamaður sem spilar fyrir Valencia á Spáni. Í þættinum ræðir Martin fórnina sem þarf til þess að ná árangri, uppeldi og nálgun foreldra á börn og ungmenni í íþróttum, litlu skrefin, peninga, hvað virkilega skiptir máli í lífinu, að allt gerist af ástæðu, að nálgast alla með virðingu og margt margt fleira.
Guðjón Svanson er fyrirlesari, ráðgjafi, samskiptastjóri og höfundur bókarinnar Lifðu! Í þættinum ræðir Guðjón um hvað við getum lært af bláu svæðunum í heiminum til þess að lifa heilbrigðu og ánægjuegu lífi, hvað Ikigai er, að vera þú sjálfur, hugrekki og margt fleira.
Arnar Gunnlaugsson er þjálfari Íslandsmeistara Víkinga og fyrrum atvinnumaður í fótbolta. Í þættinum ræðir Arnar fótolta, leiðtogahæfni, stöðuga uppfærslu á sjálfum sér, lærdóm frá erfiðleikum, auðmýkt, trúleysi, að hlusta og svo margt margt fleira.
Patrekur er frjálsíþróttakappi sem náði góðum árangri á paraolympics. Í þættinum ræðir Patrekur hvernig það var að missa 100% sjón niður í 5% og hvernig hugarfar og viðhorf hjálpaði honum að halda áfram að lifa lífinu og margt fleira.